Hjá Móður Jörð hefur Bankabyggi verið pakkað í sparifötin. Á pokanum eru uppskriftir af forrétt, aðalrétt og eftirrétt.
Gjafapakkningin fæst á eftirtöldum stöðum: Heilsuhúsinu Yggdrasil Fjarðarkaupum Góðri heilsu, Melabúðinni og Blómavali.
Holl og falleg tækifærisgjöf. |
|
Uppskriftir í anda jólanna |
|
Hér á vefnum er safn uppskrifta þar sem meginuppistaðan er bygg og grænmeti. Skoðið nýjar bygguppskriftir í anda jólanna m.a. byggsteik, laufabrauð, jólagraut Gabríels og byggforrétt. |
|
Sunnudagur, 30 Nóvember 2008 11:45 |
|
Móðir jörð verður með sölu á lífrænt ræktuðum jólatrjám á horninu við Yggdrasil á Skólavörðustíg dagana 19. til 23. desember. Um er að ræða jólatré af tegundinni furu.
Veljum íslenskt! Veljum íslensk jólatré í ár!
|
|
Sunnudagur, 30 Nóvember 2008 11:35 |
|

Uppskeru er lokið og öruggt að allir sem vilja fá jólakartöflurnar, en á síðasta ári kláruðust þær um hátíðarnar og fengu ekki allir sem vildu. Nóg verður til af kartöflum fram eftir vetri og einnig nokkuð af rófum. Rauðrófur, gænkál og hvítkál fara langt með að duga út þetta ár. Neysla á Bankabyggi hefur stór aukist núna á síðustu vikum og greinilegt að landinn velur íslenskt í kreppunni. Nóg er til af korni til að anna aukinni eftirspurn. Gaman er að geta þess að veitingastaðir Nings hafa nýlega hafið sölu á kjúklinga- og grænmetisréttum með Bankabyggi og eru þeir strax orðnir mjög vinsælir. Reynir bakari og og Brauðhúsið hafa einnig stór aukið notkun á Bankabyggi og byggmjöli frá Móður jörð.
|
|
Lesa meira...
|
|
Kartöfluuppskera í fullum gangi |
|
Fimmtudagur, 18 September 2008 10:50 |
|

Í Vallanesi er upptaka á kartöflum hafin að fullum krafti. Teknar eru upp bæði rauðar íslenskar og gullauga. Hægt er að leggja inn pöntun með því að fara inn í linkinn Hafa samband. Allar pantanir verða afgreiddar eins fljótt og unnt er. .
|
|
Fimmtudagur, 12 Október 2006 10:00 |
|
Það sprettur vel enda veðurblíða hin mesta síðustu dagana á Héraði. Grænmeti frá Vallanesi er þegar farið að sjást í verslunum alls staðar á landinu. |
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 3 af 4 |