FLETTIMYNDIR - Vallanes

grodurhus2.jpg

Uppskera

eymi2.jpg

Starfsemin

woofsbanner2.jpg

Bóndinn

eymi.jpg

Byggið

byggsalat2.jpg
Rauðrófugló frá Móður Jörð
Þriðjudagur, 15 Desember 2009 15:20
Komin er á markað ný vara frá Móður Jörð, nefnist hún Rauðrófugló enda glóir hún af hollustu og ferskleika. Rauðrófugló Móður Jarðar er bragðmikil grænmetisblanda sem bragðast vel með villibráð, lambasteikum, svínakjöti og flestum grænmetisréttum. Einnig með ýmsum ostum, t.d. gráðaostum. Rauðrófur eru þekktar fyrir hollustu og við mælum einfaldlega með þeim sem hollri viðbót með öllum mat.   Innihald: Rauðrófur, laukur, epli, hrásykur, eplaedik, vatn, engifer, hvítlaukur, kóríander, sjávarsalt, eldpipar. 
Helstu sölustaðir eru: Melabúðin, Yggdrasill, Krúska, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Maður lifandi, Brauðhúsið, Hjá Jóa Fel, Blómaval, Hagkaup, Ostabúðin Skólavörðustíg, Ostahúsið, Búrið Nóatúni 17 og Café Valný og Samkaup á Egilsstöðum. 
 
Nýtt merki Móður Jarðar
Föstudagur, 09 Október 2009 14:57


Móðir Jörð hefur nú tekið upp nýtt logo. Tilgangurinn er að gera merkið einfaldara og skýrara, færa það nær Móður Jörð ef svo má segja. Til að byrja með verða báðar útgáfurnar í gangi meðan gamlar birgðir eru að klárast.

Vonandi fellur þetta nýja merki neytendum í geð og áfram mun Móðir Jörð standa fyrir góða þjónustu, gæði og hollustu.

 
Uppskera og þresking í fullum gangi
Þriðjudagur, 29 September 2009 08:18

Þessa dagana er verið er að þreskja korn í Vallanesi og lofar uppskeran góðu. Byggið er síðan unnið á staðnum og pakkað í neytendaumbúðir. Kartöfluuppskera er enn í fullum gangi, upp úr jörðinni koma bæði lífrænt ræktaðar gullauga og rauðar íslenskar sem hægt er að nálgast víða í verslunum. Hnúðkál, rófur og hvítkál fylla geymslur í Vallanesi - og er farið að sjást á markaðnum undir merkjum Móður jarðar

 
Uppskera komin í verslanir
Föstudagur, 24 Júlí 2009 13:33

Uppskera er hafin í Vallanesi og komin í verslanir. Fyrstu tegundir eru grænkál, salat, steinselja,  strandblaðka og hnúðkál.

 
Móðir jörð með bás í Laugardalshöll 8.-10. maí
Fimmtudagur, 07 Maí 2009 21:36

Móðir Jörð mun taka þátt í sýningunni  Ferðalög og frístundir í Laugardalshöllinni 8. -10. maí. Staðsetning: bás Austurlands á Ferðatorginu - merktur F4. Þar mun meðal annars nýstofnað félag,  Austfirskar krásir – matur úr héraði, kynna hvaða krásir og þjónustu Austurland hefur að bjóða gestum og gangandi. Eymundur mun gefa að smakka krásir úr byggi enda ákveðinn í því að koma
þjóðinni á bygg.

Sýningunni er ætlað að hjálpa fólki að finna hvað því stendur til boða í ferðalögum um landið okkar góða. Það er ljóst að margir munu kjósa að ferðast innanlands í sumar og matur leikur stórt hlutverk í  ferðalögum og frístundum.

Á sýningunni verður keppt í matreiðslu og mun Bankabyggið frá Móður Jörð  vera hluti af hráefninu enda vinsælt hjá okkar færustu matreiðslumönnum.

 
 
Kynningar á næstunni
Sunnudagur, 18 Janúar 2009 14:19


Kynningar hjá Eymundi Magnússyni verða á eftirfarandi stöðum á næstunni :

Heilsuhúsið Kringlunni kl. 14-17:30  miðvikudaginn 28/1

Hagkaup Kringlunni kl 15-18  fimmtudaginn 29/1 og föstudaginn 30/1,

Melabúðin Hagamel  kl 15-18  þriðjudaginn  3/2 og miðvikudaginn  4/2

Blómaval Skútuvogi  kl 15-18 fimmtudaginn 5/2, föstudaginn 6/2,  laugardaginn 7/2  og sunnudaginn 8/2.

 

 Myndin er frá kynningu Eymundar í Heilsuhúsinu á dögunum.

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 4
Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569