|
Hráefni: 3 1/2 bolli soðið Bankabygg 4-5 gulrætur gróft rifnar 1/3 bolli rúsínur 1/3 bolli ristuð sólblómafræ 1/4-1/3 bolli ólífuolía 3 msk sítrónusafi 1 bolli ferskt dill eða 3-4 msk þurrkuð dillfræ sjávarsalt og svartur pipar Aðferð: Blandið byggi, gulrótum, rúsínum og fræum saman. Gerið sósu úr sítrónusafa, olíu og dilli og blandið vel saman í matvinnsluvél eða krukku með loki. Látið bíða í smá stund og hellið síðan yfir kornið. Saltið og piprið eftir smekk.
|