|
Þriðjudagur, 06 Apríl 2010 13:22 |
|
Enn ein dásemdin frá Móður Jörð hefur nú litið dagsins ljós.
Það er þunnt hrökkkex sem nefnist Hrökkvi og er í þremur bragðtegundum: Sesam Hrökkvi Kúmen Hrökkvi Hvannar Hrökkvi Hrökkvi er þunnt og stökkt hrökkkex, gott með ostum og öðru áleggi, t.d. Rauðrófugló og Gulrófugló frá Móður Jörð. Hrökkvi er einnig frábært og hollt snakk beint úr pokanum. Hrökkvi er að mestu úr trefjaríku byggmjöli sem bætir meltinguna og er góð undirstaða að heilbrigðu mataræði.
|