|
Uppskera hafin í Vallanesi |
|
Laugardagur, 10 Júlí 2010 12:34 |
|
Það voraði vel á Héraði og kornsánig hófst óvenju snemma eða í lok apríl, sáð var bæði byggi og hveiti. Mikil aukning er í ræktun grænmetis og von er á miklu úrvali þegar líður á sumarið. Eftir langt þurrkaskeið í vor fór loks að rigna nú fyrir skömmu og þá fór allt að spretta og salathausarnir tóku gleði sína á ný.
Núna er komið á markað grænkál, salat og steinselja og von á hnúðkáli von bráðar. Fyrsta sending er komin í verslanir á Egilsstöðum og á höfuðborgarsvæðinu og næsta sending kemur í verslanir í Reykjavík og nágrenni n.k. miðvikudag, 14. júlí. Nú þegar salatið er komið er rétt að minna á Gulrófuglóna sem ásamt góðu salati er fyrirtaks meðlæti með grillsteikinni. Gleðilegt grillsumar.
|