FLETTIMYNDIR - Vallanes

grodurhus.jpg

Uppskera

uppskera banner1.jpg

Starfsemin

woofsbanner2.jpg

Bóndinn

fyrrverandi vinur.jpg

Byggið

bygg banner 3.jpg
Nuddolíur
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Lífolía, Birkiolía og Blágresisolía - náttúrulegur yndisauki frá Móður Jörð 

Lífolían er mjög góð nuddolía, djúpvirk, bólgueyðandi og hreinsandi. Hún er góð fyrir vöðva, liði og bjúg og sérlega góð fyrir sogæðakerfið. Ófrískar konur með bjúg á fótum hafa góða reynslu af Lífolíunni og er besta aðferðin sú að rétta karlinum Lífolíuflösku og fæturna á eftir. Auk þess að gera konunni gott fá karlarnir við þetta mjúkar hendur.
Lífolían er mýkjandi og græðandi og hentar vel á skorpna og sprungna húð t.d. á fótum, gott er að bera hana á þreytta fætur eftir langan vinnudag. Einnig er gott að nota Lífolíuna á viðkvæma húð eftir rakstur. Lífolían hefur verið notuð með góðum árangri á sauma eftir uppskurð til að fyrirbyggja ofhold. 

Birkiolían er mýkjandi og græðandi og góð fyrir þurra húð, barnaexem, unglingabólur og kláða. Hún hefur mild slakandi áhrif og er því tilvalin á maga og brjóst verðandi mæðra til að mýkja húðina,  sem bossakrem á bleiubörnin og í ungbarnanudd. Birkiolían er alhliða mýkjandi og græðandi olía á allan líkaman og tilvalið að taka hana með til sólarlanda til að næra húðina eftir sólböð.  

Blágresisolían hefur reynst vel á mjög þurra húð, psoriasis, sólarexem og viðkvæma slímhúð svo.s. kynfæri og endaþarm. Hún er bólgueyðandi og góð til að styrkja og byggja upp húðina og hefur reynst vel við vægri sveppasýkingu og til að byggja upp slímhúðina eftir lyfjameðferð. Blágresisolían er mjög nærandi og sérlega góð fyrir andlitið eftir mikla útiveru. 

Það er mjög mikilvægt nú á tímum ofnæmis og óþols að neytendur geti treyst því að allar framleiðsluvörur Móður Jarðar séu 100% úr lífrænt ræktuðu hráefni, því til staðfestingar er öll framleiðslan vottuð af vottunastofunni Tún. 

Móðir jörð Vallanesi 701 Egilsstaðir s. 8995569 eymi@simnet  www.vallanes.net  Dreifing Heilsa hf


 

LAST_UPDATED2
 


Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569