FLETTIMYNDIR - Vallanes

vallanes  fjarska2.jpg

Uppskera

eymi2.jpg

Starfsemin

woofsbanner2.jpg

Bóndinn

fyrrverandi vinur.jpg

Byggið

bygg banner 7.jpg
Súpur, salöt og smáréttir
Byggsalat Prenta út
Hráefni:

3 1/2 bolli soðið Bankabygg
4-5 gulrætur gróft rifnar
1/3 bolli rúsínur
1/3 bolli ristuð sólblómafræ
1/4-1/3 bolli ólífuolía
3 msk sítrónusafi
1 bolli ferskt dill eða 3-4 msk þurrkuð dillfræ
sjávarsalt og svartur pipar

 

Aðferð:
Blandið  byggi, gulrótum, rúsínum og fræum saman. Gerið sósu úr sítrónusafa, olíu og dilli og blandið vel saman í matvinnsluvél eða krukku með loki. Látið bíða í smá stund og hellið síðan yfir kornið.
Saltið og piprið eftir smekk.
 
Spírað bygg með grænmeti og heitu kryddi Prenta út
 

Hráefni:
1 bolli ferskir sveppir, saxaðir
3 bollar rifið grænmeti t.d. rófur, zukini, kúr­bítur og  gulrætur
1 bolli spírað bygg
2 tómatar fínt saxaðir
1/4 bolli söxuð steinselja

Sósa:

1-2 rif pressaður hvítlaukur
1/2 bolli sítrónusafi
2/3 bolli ólífuolía
1 tsk mísó
1 tsk létt hnetusmjör
2 tsk salt sjávar
1 tsk vel saxður jalapenopipar
svartur pipar

Hristið sósuna fyrst vel saman í krukku eða matvinnsluvél, hrærið síðan öllu kröftuglega saman í skál og sveiflið á borðið.
 
Grænt gulrótasalat Prenta út
Hráefni:
200 gr gulrætur
150 gr (2-3 leggir) grænkál, skorið í fína strimla og léttkreist
með fingrunum
50 gr þurrristaðar pecanhnetur
4 msk þurrristuð sesamfræ, 

4 msk ólífuolía
2 msk sítrónusafi
smá tamari og hvítlaukur fyrir þá sem vilja


Aðferð:
- gulræturnar eru skornar í þunnar "eldspýtur” eða rifnar gróft á rifjárni og settar í skál ásamt grænkálinu og pecanhnetunum
- sítrónusafa, olíu, sesamfræum, tamari og hvítlauk er blandað saman og hellt yfir.
 
Rófu- og kartöflusalat Prenta út
Hráefni:
1/2 kg kartöflur
1/2 kg rófur
50 gr möndlur
þurrristaðar á pönnu
50 gr grænar
ólífur
10 sólþurrkaðir tómatar í strimlum
1 msk kapers
1/2 búnt fersk steinselja

1 1/2 dl ab-mjólk
1 msk sinnep
1 tsk karrý
salt og cayennepipar eftir smekk


Aðferð:
- kartöflurnar eru skornar í passlega munnbita og bakaðar í ofni við 200 °C í ca 35-40 mín,
- kryddaðar með smá karrýi og salti
- rófurnar eru skornar í þunna þríhyrninga” og settar út í sjóðandi vatn í ca 3 mín, þá eru þær settar í sigti og kældar
- kartöflur, rófur, möndlur, ólífur, sólþurrkaðir tómatar og kapers, sett í skál 
- ab-mjólkinnni er hellt í skál og krydduð með sinnepi, karrýi, salti og cayennepipar
- þessu er síðan hellt yfir salatið og blandað vel  saman við - tilbúið.
 
Kryddað hvítkálssalat Prenta út

Hráefni:
225 gr hvítkál, rifið frekar fínt
1 rauður chilipipar, steinhreinsaður
25 gr ferskur kóriander
25 gr þurrristaðir heslihnetukjarnar
1 msk rifið sítrónuhýði
1 tsk rifin engifer­
rót
1 tsk tamarinsósa,
2 msk ristuð sesamfræ,
safi úr 1/2 sítrónu
smá salt
cayennepipar
fyrir þá sem vilja.  

Öllu blandað saman í skál og tilbúið  - bingó !

 
Bygg- rófu- og grænkálssúpa Prenta út
Hráefni:
1 búnt grænkál (3-400 gr)
1 dl Bankabygg
1 væn rófa
4 gulrætur
1 græn­metis­teningur
2 l vatn eða soð
jurtasalt og krydd eftir smekk.

 

Aðferð:
Fyrst er Bankabyggið soðið í u.þ.b. 35 mín, þá er smátt skornu grænmet­inu bætt
í pottinn, síðan kryddað og soðið í 10-15 mín í viðbót.
 
Grænkálsjafningur Prenta út

Hráefni:
1 búnt grænkál (6 leggir)
100 gr smjör eða olía
50 gr hveiti
4 dl mjólk
kryddað
með salti og pipar og sykrað eftir smekk (fyrir þá sem mega við því að verða sætari).

Aðferð:
Grænkálið er gufusoðið í 4 mínútur og grófustu leggirnir fjarlægðir, vatnið er látið síga vel af og kálið saxað niður eða hakkað. Smjörið er brætt og gert að þykkni með því að bæta hveitinu rólega saman við. Síðan er mjólkinni bætt við í smá skömmtum og suðan látin koma upp á milli til að forðast kekki. Þá er kryddað og soðið í 4 mín, að lokum er grænkálinu bætt útí og soðið áfram í 2 mín. Ef notað er fryst grænkál er tilvalið að láta það þiðna í jafningnum. Þessi jafningur er góður með öllum mat.

 
Steikt grænkálssalat Prenta út
Hráeefni:
5-6 blöð grænkál, stöngull fjarlægður og kálið sneitt í ræmur
5 msk sesamolía

5 msk sesamfræ, ristuð á þurri pönnu þar til þau byrja að ilma og poppast.

Aðferð:

Hitið olíuna á pönnu (vokpönnu sé hún við hendina), snöggsteikið grænkálið í olíunni í 2-3 mín, stráið sesamfræum yfir og berið fram heitt eða kalt sem meðlæti. Í þetta má líka bæta eftir smekk hnetum, öðru grænmeti, kryddjurtum og sósum.
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 4
Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569