FLETTIMYNDIR - Vallanes

vallanesbanner6.jpg

Uppskera

raudrofa2.jpg

Starfsemin

woofsbanner2.jpg

Bóndinn

fyrrverandi vinur.jpg

Byggið

bygg banner 7.jpg
Aðalréttir
Engiferkryddað bygg Prenta út
Hráefni:

1 bolli Bankabygg
1 tsk fennilfræ
1/2 tsk anisfræ
1 msk ólífuolía
2 tsk sjávarsalt
1/4 bolli currants
7 heilir negulnaglar eða 1/4 tsk negulduft
börkur af 1 appelsínu
2 1/4 bollar soðið vatn
2 msk skrældur og vel saxaður engifer
2 bollar rifnar rófur
1 1/2 bolli saxað sellerí
3 msk ristuð sesamfræ

 

Aðferð:
Skolið byggið og ristið á pönnu eða í ofni við 170°C í 10-15 mín, hrærið vel í á meðan. Stráið síðan fennil og anisfræum yfir, ristið áfram í 2 mín og setjið síðan í pott. Blandið þá saman við 1 tsk ólífuolíu, salti og currants. Ef notaður er heill negull þá er gott að stinga honum í börkinn og bæta útí pottinn. Hellið sjóðandi vatni yfir og hrærið. Látið suðuna koma upp, lækkið hitann og setjið lokið á. Sjóðið áfram í 45 mín eða þar til allt vatnið er soðið upp og takið þá appelsínubörkinn upp­ úr.

Steikið græn­metið í olíunni á pönnu, byrjið á engifernum síðan rófunum og loks sellerí. Leyfið þessu að mýkjast og bætið þá sesamfræjunum útí. Blandið að lokum grænmetinu og bygginu saman og skreytið með sesamfræum.
 
Kartöflubaka Prenta út
Hráefni:
600 gr soðnar kartöflur, kældar og skornar í sneiðar
400 gr vel þvegnar púrrur

smá olía

1 tsk salt

1 tsk karrý

cayennepipar á hnífsoddi
1 msk gott sinnep (má sleppa)

100 gr byggmjöl

1 msk ólífuolía

1/2 tsk salt

1/4 tsk múskat

1 tsk lyftiduft

heitt vatn, ntil að halda deiginu saman
150 gr rifinn sojaostur

 

Aðferð:
- púrrurnar eru skornar í litla bita og mýktar á pönnu í olíu, kryddaðar og látnar malla í ca 5 mín.
- sinnepinu er bætt útí sem og kartöflusneiðunum og smá vatni ( 1 msk) og látið malla í ca 10 mín.

Botn:
- byggmjöli, salti, múskati og lyftidufti er blandað saman, olíu er bætt útí sem og heitu vatni og þtta hnoðað þar til deigið er viðkomu líkt og eyrnasnepill
- deigið er flatt út og sett í smurt bökunarform og forbakað í ca 5-8 mín við 200°C
- ostinum er blandað saman við kartöflu-púrrublönduna og þetta er sett í for­bakaðan botninn og bakað í ca 20 mín við 200°C.
 
Bakað rófusufflé Prenta út
Hráefni:

4 rófur
5 gulrætur
2 dl soðið Bankabygg
4 tsk kóriander
1 tsk salt
1 tsk pipar

2 msk tómatpurré
Rifinn ostur, tegund og magn eftir smekk t.d. 1 dl sojaostur eða
mosarellaostur eða 1/2 dl parmesanostur.Fyrir þá sem vilja er einnig hægt að þeyta 2 egg og blanda varlega samanvið.

Aðferð:
Grænmetið er gufusoðið og síðan sett í matvinnsluvél ásamt kryddi og tómat­purré og maukað þar til það er mjúkt og jafnt. Osti og eggjum ef það er notað er blandað samanvið ásamt soðna bygginu og síðan er allt sett í eldfast mót. Bakað við 200°C eða undir grilli þar til gullinbrúnt að ofan. Borið fram heitt.
 
Grænkálsbaka Prenta út
Botn / skel :

100 gr smjör eða olía
100 gr byggmjöl
100 gr hveiti
salt og vatn

Hnoðað í deig og flatt út í formbotninn. Einnig kemur til greina að hlaupa út í búð eftir smjördeigi; passið ykkur á bílunum.

Fylling:

6 egg
1/4 l kaffirjómi
200 gr rifinn ostur
100 gr parmesanostur
1 kg grænkál

2 rauðlaukar
svartur pipar ný malaður
1/3 rifin múskathneta
jurtasalt


Grófasti stöngullinn er tekinn af grænkálinu og það skorið smátt (eða tætt í mat­vinnsluvél) ásamt rauð­laukunum og síðan  er hvort tveggja  steikt í nokkrar mínútur
í olíu. Allri fyllingunni blandað saman, hún sett í skelina og allt bakað við 180°C í 40 mín.
 
Byggborgarar Prenta út

Hráefni.
1 dl Bankabygg
1 dl hýðishrísgrjón
1 meðalstór smátt saxaður laukur
1 1/2 dl
maukaðar soðnar kartöflur
1 dl rifinn sojaostur
salt
cayennepipar á hnífsoddi
2 tsk grísk kryddblanda frá Pottagöldrum
1 egg
til að velta uppúr (má sleppa)

Aðferð:
- byggið og hrísgrjónin eru soðin sitt í hvoru lagi
- soðnu korninu og restinni af uppskriftinni er blandað vel saman
- síðan eru mótuð 
meðalstór buff - frekar flöt
- buffin er brúnuð upp úr ólífuolíu á pönnunni þar til þau eru gyllt
- gott er að setja borgarana í  "heilsuhamborgarabrauð“ ásamt góðri kaldri sósu og tilheyrandi grænmeti.

 
Kræsilegt bygg Prenta út

Hráefni:
1.5 dl Bankabygg
5 dl vatn
1 rauðlaukur (eða vorlaukur)
1 hvítlauksrif
1 msk tamarisósa
safi úr 1 appelsínu
börkur af 1 appelsínu (lífrænt ræktaðri)
4 tómatar
4 msk fínt söxuð steinselja.

 Aðferð:

- byggið er soðið í vatninu í ca 40 mínútur eða þar til það hefur drukkið í sig allt vatnið.

- rauðlaukurinn er smátt saxaður og settur í skál, hvítlaukurinn er pressaður og

  settur saman við, tamarisósu og appelsínusafa er bætt við ásamt appelsínuberki,

  tómatarnir eru skornir í litla bita og settir útí, loks er saxaðri steinselju bætt útí

  og öllu blandað saman,

- að lokum er soðnu bygginu blandað saman við.

  
 
Vetrar-chili Prenta út

Hráefni:

3-4 msk græn ólífuolía
1 meðalstór laukur
1 púrra, 2 grænkálsblöð
2 rófur

2-3 gulrætur
1 rauð paprika
1 dós niðursoðnir tómatar

2-3 hvítlauksrif
1 stór ferskur rauður chili eða 1/2 tsk þurrkaður
1 dl tómat­ púrré
1 dl appelsínusafi
2 tsk cuminduft
2 tsk paprikuduft
1 dós rauðar

nýrnabaunir eða 150 gr ósoðnar baunir
ferskt kóríander.

Aðferð:

- baunirnar eru lagðar í bleyti yfir nótt ef notaðar eru ósoðnar baunir

- þær eru síðan soðnar í hreinu vatni í 45 mín

- laukur, púrra og grænkál er skorið frekar smátt og látið mýkjast í olíu í ca 15 mín í

  potti/pönnu

- rófur og gulrætur eru skornar í litla bita og settar út á laukinn

- tómatarnir eru maukaðir og blandað saman við

- hvítlaukurinn er smátt saxaður eða pressaður og settur saman við

- ef notað er ferskt chili er það skorið í litla bita og bætt útí. Ath ef þið viljið hafa

   réttinn sterkan eru steinarnir notaðir í réttinn en við mildari útgáfu er piparinn

   steinhreinsaður

- restinni af uppskriftinni er blandað saman við og látið malla í ca 30-40 mín

- Ef notaðar eru for­soðnar baunir eru þær settar útí strax, en dósabaunirnar eru settar

  útí þegar ca 10 mín eru eftir af suðutímanum

- hægt er að bæta dálitlum vökva útí réttinn svo hann verði ekki of þurr

- ferskt kóríander er klippt yfir réttinn áður en hann er borinn fram

- borið fram með Grænkálssalati og Kræsilegu byggi (sjá uppskriftir).

 
 
Hnúðkálsgratín með sveppum Skoða sem PDF skjal Prenta út

Þetta þarf fyrir fjóra:

600 grömm hnúðkál
200 grömm nýir sveppir
2 matskeiðar smjör
2,5 dl grænmetissoð (teningur)
60 grömm rifinn gratínostur
Salt og pipar eftir smekk

Afhýðið hnúðkálið. Skerið það svo í svo sem 5-10 mm þykkar skífur og hleypið suðunni upp á þeim í grænmetissoðinu. Leggið þær síðan í eldfast mót. Sneiðið sveppina og steikið þá í 1 msk af smjörinu. Kryddið þá með salti og pipar. Þegar sveppirnir eru orðnir ljósbrúnir eru þeir lagðir ofan á hnúðkálsskífurnar í fatinu. Afgangnum af smjörinu brugðið á heita pönnuna og látið bráðna. Síðan er smjörinu af pönnunni hellt jafnt yfir og þar ofan á er ostinum stráð. Steikt í 200-225°C heitum ofni þar til osturinn hefur bráðnað og er orðinn fallega brúnn.

Með vænum skammti af soðnu bankabyggi er þetta fullkomin máltíð.

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2
Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569