|
|
|
Steinseljan leynir á sér og er á mörkum þess að vera kryddjurt eða matjurt. Og hún er svo holl - að því að talið er - að enginn dagur ársins ætti að líða án þess að menn gæði sér á svo sem einu steinseljublaði! Hún inniheldur heilt apótek af næringarefnum og það í svo ríkum mæli að varla er nokkur máltíð fullkomin án hennar! Orkugildi hverra 100gr er samt aðeins 175 kílójúl. En sama magn gefur vel yfir dagsþörfina af A-, C- og K-vítamínum. Einnig mikið B2-vítamín, fólínsýru, E-vítamín, kalk, járn, fosfór o.s.frv. ... Listinn er lengri en rúm leyfir hér!
Upprunasvæði steinseljunnar nær frá fjalllendi Balkanskagans og austur að Himalajafjöllum. Menn hafa ræktað hana lengur en minni nær og hlutverk hennar í matarmenningu hinna fornu Grikkja og Rómverja var mikið. Þar lá við að hún væri talin allra meina bót. Steinseljukransar um höfuðið að morgni læknuðu timburmenn! Steinselja heldur aftur af hvítlaukslykt! Volgir steinseljubakstrar mýkja bólgur og lina liðverki! Steinselja passar með öllum matréttum. Hún er sjálfkjörin í hrásalöt og hver einasta smurbrauðsjómfrú leggur stolt sitt í að hafa steinseljukvist á brauðinu! Mörgum finnst steinseljan hrjúf í góm. Því er best að saxa hana smátt áður en hún er notuð í mat og hún er alltaf sett yfir matinn þegar hann er full eldaður og tilbúinn á borðið. Steinselju er mjög auðvelt að frysta í heilu lagi sem saxaða. Fryst er hún notuð eins og ný. |
|
|
|
|