FLETTIMYNDIR - Vallanes

bread.jpg

Uppskera

kaal.jpg

Starfsemin

woofsbanner2.jpg

Bóndinn

fyrrverandi vinur.jpg

Byggið

buff.jpg
Bygg og grænmeti
Bygg og grænmeti til betra lífs
Trefjaefni og bætt starfsemi ristils.

Nú er orðið ljóst að trefjaefni gegna mikilvægu hlutverki í mataræði til að varð­veita góða heilsu. Trefjaefni eru flokkuð í vatnsleysanleg og óleysanleg. Óleysan­leg trefja­efni eru nauðsynleg til að viðhalda eðlilegri starfsemi ristilsins. Áhugi á vatns­leysanlegum trefjaefnum hefur aukist mikið þar sem þau eru talin lækka kólesteról í lifur og blóði. Í norrænum næringarráðleggingum er lagt til að full­orðnir neyti 25 til 30 gramma af trefjaefnum á dag.

Niðurstöður neyslukönnunar
sýna, að þorri Íslendinga er undir þeim mörkum og helmingur fólks fær innan við 16 grömm af trefjaefnum á dag. Ástæðan er fyrst og fremst lítil neysla á korn­­mat og grænmeti. Þessir fæðuflokkar ásamt ávöxtum og berjum veita svo að segja öll trefjaefni fæðunnar. Margir aðhyllast þá kenningu að okkur sé hollast að neyta fæðu sem vex á sömu slóðum og við sjálf, þannig sé okkur Íslendingum t.d. hollara að fá C-vítamín úr rófum í stað appelsína (sem líka eru kælandi) og að bygg sé betra fyrir líkama okkar en hrís­grjón sem vaxa á mjög suðlægum slóðum.
 


Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569